Efni á vefnum er almennt mjög vel sett fram. Yfirleitt er ekki mikill texti á hverri síðu og honum er skipt niður í stuttar málsgreinar. Það er áberandi hve listar eru mikið notaðir og þrátt fyrir nokkuð ítarlega leit fannst ekki langur texti sem greinilega hefði átt að skipta í lista. Á nokkrum stöðum var hægt að finna ónákvæmni í uppsetningu texta og má þar nefna mismikið bil á milli málsgreina. Einnig fundust nokkrar síður þar sem ekkert efni var en skilaboð um að efni væri í vinnslu.

Notkun mynda á vefnum er ekki mjög markviss. Myndefni er ekki mjög mikið og myndir eru misstórar og í ólíkum stíl. Það gæti skýrst af því að Suðurnesjabær er nýtt sveitarfélag sem varð til með sameiningu tveggja sveitarfélaga. Ekki er ólíklegt að myndir sem þegar voru til á vef hvors sveitarfélags hafi verið færðar á þennan nýja vef.

Umbrot á vefnum er almennt gott. Á nokkrum stöðum var ósamræmi í svæðum á síðum en þar var þá mismikið bil milli texta og málsgreina eða milli texta og myndefnis. Á einhverjum síðum var stórt autt svæði neðst á síðunni þannig að skrolla þurfti niður til að sjá tengla neðst á síðunni og fót vefsins.
Greining – Síða 1
Fyrst var síða um sundlaugar í Suðurnesjabæ skoðuð en hún er ætluð ferðamönnum. Þar er mynd af annarri sundlauginni sem nær yfir allan efri hluta síðunnar. Myndin tekur mikið pláss, veitir ekki miklar upplýsingar og engin mynd er af hinni sundlauginni sem fjallað er um. Síðan koma heiti sundlauganna með tengil á vefsíður þeirra og síðan kemur opnunartími sundlauganna. Þessi texti rennur aðeins saman. Það skal tekið fram að þessi síða er undir upplýsingum fyrir ferðamenn en annars staðar á vefnum eru ítarlegri upplýsingar um íþróttamiðstöðvar og sundlaugar en sú síða tilheyrir flokknum þjónusta.
Gerð var ný útgáfa af síðunni með þessum breytingum:
- mynd af báðum sundlaugunum.
- heiti sundlauganna kemur einu sinni fyrir, þau eru tengill á vefsíðu og opnunartími kemur þar beint fyrir neðan.
- upplýsingar um sumaropnun teknar út enda eiga þær ekki við.
Greining – síða 2
Næst var farið yfir síðu um veislusali. Hún er almennt vel sett upp en fyrirsagnir eru ekki rétt skilgreindar. Titill síðunnar er fyrirsögn nr. 1 en heiti sala sem fjallað er um er fyrirsögn nr. 5. Undir hverjum sal kemur svo verðskrá og þar er fyrirsögnin líka nr. 5. Þetta hefur líklega verið skilgreint út frá útliti en þessi uppsetning virkar ekki þegar kemur að aðgengi síðunnar.
Gerð var ný útgáfa af síðunni með þessum breytingum:
- skilgreiningu fyrirsagna var breytt þannig að þær uppfylli kröfur varðandi aðgengi.
- síðan er ekki vel staðsett í leiðakerfi vefsins en hún flokkast með upplýsingum fyrir ferðamenn þar sem eru einnig upplýsingar um gististaði, gönguleiðir og annað sem höfðar til ferðamanna.
Greining – síða 3
Þriðja síðan sem var skoðuð er um gistingu í sveitarfélaginu. Þar eru upplýsingar um nokkra gististaði og eru talin upp helstu atriði varðandi hvern þeirra. Þessi texti rennur saman og ekki er nógu mikið bil á milli flokka sem er nauðsynlegt eins og Steve Krug bendir á í bókinni Don´t Make Me Think, Revisited.
Gerð var ný útgáfa af síðunni með þessum breytingum:
- atriðin um hvern gististað var breytt í lista enda er um að ræða upptalningu.
- með því að breyta textanum í lista var meiri aðgreining í milli staðanna sem verið er að telja upp og einnig var passað upp á að hafa bil á milli þeirra á síðunni.