Suðurnesjabær er með eftirfarandi veislusali til útleigu. Hægt er að hafa samband við bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar í síma 425 3000 eða senda fyrirspurn á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is vegna útleigu og frekari upplýsinga.
Samkomuhúsið í Sandgerði – Norðurgata 18
Í samkomuhúsinu er glæsileg aðstaða fyrir ýmsar uppákomur s.s. fyrir ráðstefnu- og fundarhöld, afmæli, brúðkaup, árshátíðir og fleira.
Verðskrá:
- Almennir dansleikir kr. 140.000,-
- Árshátíðir kr. 85.000,-
- Skemmtikvöld, tónleikar, leiksýningar kr. 64.000,- m/vsk
- Lokuð hóf, brúðkaup, afmælisveislur kr. 64.000,-
- Kaffisamsæti, fermingar, útskriftir kr. 55.000,-
- Erfidrykkjur kr. 41.000,- m/vsk
- Fundir og ráðstefnur kr. 55.000,- m/vsk
- Menningarviðburðir án aðgangseyris kr. 41.000,- m/vsk
Samkomuhúsið í Garði – Gerðavegi 8
Í samkomuhúsinu eru tveir salir sem leigðir eru út, annar salurinn er fyrir 30-40 manns en hinn fyrir 100-130 manns.
Verðskrá:
- Dagsleiga kr. 40.000,-
- Minni salur vegna funda, miðað við 2 klst. útleigu kr. 17.000,-
Miðgarður í Gerðaskóla
Miðgarður rúmar rúmlega 600 manns, salurinn er leigður út fyrir ýmsar uppákomur
Verðskrá:
- Tónleikar, skemmtikvöld, sýningar m/ aðgangseyri kr. 85.000,- m/ vsk.
- Kaffisamsæti, afmæli, fermingar, útskriftir – kr. 55.000,-
- Erfidrykkjur kr. 41.000,- m/ vsk.
- Fundur og ráðstefnur kr. 55.000,-m/ vsk.
- Menningarviðburðir án aðgangseyris kr. 41.000,- m/ vsk.
Auðarstofa – Heiðartún 2
Verðskrá:
- Útleiga á sal, hvert skipti kr. 23.000,-